Fara í efni

Útivistarreglur barna

Vetrartími: 1. sept til 1. maí

  • Börn 12 ára og yngri mega vera úti til klukkan 20:00
  • Börn 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 22:00

Sumartími: 1.maí til 1. sept.

  • Börn 12 og yngri mega vera úti til klukkan: 22:00
  • Börn 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24:00

 

92. gr. Útivistartími barna. (80/2002)
Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.
Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.