Fara í efni

Íþróttamiðstöð 
og sundlaug

Íþróttamiðstöðin Kirkjubæjarklaustri er við Kirkjubæjarskóla á Síðu. Í Íþróttamiðstöðinni er íþróttasalur og líkamsrækt. Þar er líka sundlaug, með tveimur heitum pottum.

Innangengt er úr Kirkjubæjarskóla í íþróttamiðstöðina og eru þar íþrótta- og sundtímar fyrir nemendur en jafnframt opið fyrir almenning.

Íþróttahúsið var tekið í notkun 2004. Sundlaug hafði verið við Kirkjubæjarskóla frá árinu 1975 en byggð var ný sundlaug 2007. Hægt er að leigja tíma í íþróttasal.

Mánudaga-laugardaga11.00-19.00
Sunnudaga11.00-15.00
Opnunartímar

Hætt er að selja inn hálftíma fyrir lokun og ætlast til að gestir hafi yfirgefið húsið á lokunartíma.